Skip to content

Lög FKÍ

Lög félags körfuknattleiksþjálfara á Íslandi:

1. grein
Félagið heitir Félag Körfuknattleiksþjálfara á Íslandi, FKÍ. Aðsetur félagsins er í Reykjavík.

2. grein
Félagið er félag körfuknattleiksþjálfara á Íslandi með eigin fjárhag og lög.

3. grein
Markmið og tilgangur félagsins skulu vera:

  • Að sameina körfuknattleiksþjálfara í eitt félag
  • Að vinna að hagsmunamálum körfuknattleiksþjálfara í hvívetna
  • Að auka áhuga á körfuknattleiksþjálfun
  • Að stuðla að því að allir þeir sem starfa við þjálfun, hafi hlotið undirstöðumenntun í körfuknattleiksþjálfun
  • Að auka menntun þeirra, er starfa að tilsögn og þjálfun í körfuknattleik
  • Að kappkosta að eiga sem best samstarf við KKÍ og alla þá sem vinna að eflingu og útbreiðslu körfuknattleiks á Íslandi

Að koma á og viðhalda samskiptum við körfuknattleiksþjálfarafélög erlendis

4. grein
Markmiðum sínum skal félagið m.a. ná með því að:

  • Halda skrá yfir alla félagsmenn og innheimta árgjald
  • Veita þjálfurum aðstoð og ráðgjöf í hagsmunamálum
  • Halda fræðslufundi og ráðstefnur um körfuknattleiksþjálfun
  • Gera kröfur um lágmarksmenntun fyrir aðild að félaginu

5. grein
Innganga í félagið skal öllum heimil sem starfa við eða hafa starfað við körfuknattleiksþjálfun. Félagar verða fullgildir meðlimir þegar þeir hafa greitt árgjald til félagsins. Félagsmenn þurfa að hafa lokið fyrsta námskeiðsstigi, KKÍ 1 og ÍSÍ 1, eða sambærilegri menntun, innan tveggja ára frá inngöngu í félagið. Hafi þeir ekki lokið þessu námi innan tiltekins frests, missa þeir rétt til aðildar að FKÍ.

6. grein
Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin á aðalfundi hverju sinni. Aðeins skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

7. grein
Stjórn félagsins skipa þrír  menn, formaður og 2 meðstjórnendur. Í varastjórn skal kjósa einn mann. Meðstjórnendurnir tveir  skipta þannig með sér verkum gjaldkera og ritara. Formaður skal jafnan kosinn til tveggja ára í senn. Aðra stjórnarmenn skal einnig kjósa til tveggja ára og skal ár hvert kjósa einn þeirra. Varamaður skal kosinn til eins árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum en þó skal formaður kosinn sérstakri kosningu, sbr. 10. grein.
[sérákvæði 2010: einn meðstjórnandi er aðeins kosinn til eins árs á aðalfundi 2010 til að ekki verði kosið um alla stjórnina annað hvert ár]

8. grein
Stjórnarfundi boðar formaður þegar hann eða meirihluti stjórnar telur nauðsynlegt. Ákvarðanir stjórnar öðlast gildi með einföldum meirihluta.

9. grein
Aðalfund félagsins skal halda á tímabilinu 15. apríl til 31. maí ár hvert. Auglýsa skal aðalfund með tveggja vikna fyrirvara til félagsmanna. Reikningsár FKÍ er starfsárið. Rétt til setu á aðalfundi, auk félagsmanna, eiga stjórn og varastjórn KKÍ, fræðslunefnd KKÍ og framkvæmdastjóri KKÍ. Hafa þessir aðilar málfrelsi og tillögurétt.  Aðeins félagsmenn sem greitt hafa árgjald til FKÍ hafa atkvæði á aðalfundi.
[sérákvæði 2010: þeir sem skráð sig í félagið fyrir aðalfund 26. maí 2010 teljast fullgildir félagsmenn á þeim tíma og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi]

10. grein
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Fundarsetning.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla stjórnar.
  4. Reikningar félagsins.
  5. Lagabreytingar.
  6. Kosning formanns til tveggja ára.
  7. Kosning meðstjórnenda og varamanna, skv. ákvæðum 7. greinar.
  8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  9. Ákvörðun um árgjald skv. 6. grein.
  10. Önnur mál.
  11. Fundi slitið.

11. grein

  1. Breytingar á lögum þessum má aðeins gera á aðalfundi og þurfa ¾ fundarmanna að greiða þeim atkvæði.
  2. Tillaga um að leggja FKÍ niður hlýtur ekki endalega afgreiðslu fyrr en á framhaldsaðalfundi og þurfa ¾ hlutar fundarmanna að greiða tillögunni atkvæði.
  3. Framhaldsaðalfundur skal vera auglýstur með einnar viku fyrirvara og skal haldinn innan 6 vikna frá aðalfundi.
  4. Verði félagið lagt niður afhendast gögn og sjóður þess Körfuknattleikssambandi Íslands.

12. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi.

) Breytingar á lögum þessum má aðeins gera á aðalfundi og þurfa ¾ fundarmanna að greiða þeim atkvæði.

b) Tillaga um að leggja FKÍ niður hlýtur ekki endalega afgreiðslu fyrr en á framhaldsaðalfundi og þurfa ¾ hlutar fundarmanna að greiða tillögunni atkvæði.

c) Framhaldsaðalfundur skal vera auglýstur með einnar viku fyrirvara og skal haldinn innan 6 vikna frá aðalfundi.

Verði félagið lagt niður afhendast gögn og sjóður þess Körfuknattleikssambandi Íslands.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.